|
Það er alltaf gaman að fá fréttir af þeim hestum sem seldir hafa verið úr landi. Kolar frá Strandarhöfði er 3.vetra stóðhestur undan Sæ frá Bakkakoti og Gyðju frá Þorsteinsstöðum. Kolar var seldur til Danmerkur á síðasta ári og fór í byggingardóm nú í vor. Þar hlaut hann 7,94 en þar sem hann er einungis 3.vetra á hann eftir að þroskast og fyllast betur út. Kolar sinnir nú í hryssum og stefnt er með hann í fullnaðardóm næsta vor og verður hann þjálfaður af Rasmus Möller Jensen.
Mynd: Kolar frá Strandarhöfði
It´s is always a joy to get news about horses from Strandarhöfuð farm that have been sold abroad. Kolar frá Strandarhöfði is a 3.year old stallion who was sold to Denmark last year. Kolar´s father is Sær frá Bakkakoti (honor prize) and his mother is Gyðja frá Þorsteinsstöðum (1.prize). Kolar was jugded this spring an received 7,94 for conformation, at only three his still is maturing and growing. Kolar is now servicing mares and will be trained by Rasmus Möller Jensen this season.
|