Heim arrow Heim arrow Folöld 2010
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Folöld 2010 Prenta Rafpóstur

gnjaÞá eru öll átta folöld sumarsins fædd, þar af eru sex hestar en aðeins tvær merar litu dagsins ljós þetta sumarið, þær Freyja Framtíðar/Hugins dóttir og Gjóska, undan Súlu og Þrist frá Feti. Báðar fæddust svartar en eru byrjaðar að grána! Ekki slæmt það.

Fyrsta folald Sunnu frá Sumarliðabæ kom í byrjun júní, það reyndist vera brúnskjóttur hestur og hreint snýttur  úr nös móður sinnar! Edda Rún skírði hann Gormur enda vantar ekki fótaburðinn í hann frekar en móður hans. Paradís frá Brúarreykjum kastaði einnig sínu fyrsta folaldi, Pegasus frá Strandarhöfði en hann er undan glæsihestinum Gaumi frá Auðsholtshjáleigu.

Dimma frá Strandarhöfði kastaði fallegum Hróðssyni sem hlaut nafnið Dökkvi frá Strandarhöfði. Spennandi folald þar á ferð! Dimma hefur nú eignast 3 afkvæmi allt hestar en við bindum miklar vonir við að næsta verði merfolald en Dimma er með staðfest fyl undan Sveini-Hervari frá Auðsholtshjáleigu.

ulbertni Í ár fengum við þrjú folöld undan Þul frá Hólum, allt hestfolöld og lofa þeir allir góðu. Þórir frá Strandarhöfði kom fyrstur, hann er undan 1.verðlauna Kveiksdótturinni Gyðju frá Þorsteinsstöðum og er brúnn á lit. Þórir var nefndur eftir elsta tengdasyninum enda þykja þeir glettilega líkir í sjón. Þulur okkar hefur reynst okkur vel bæði á keppnisbrautinni og sem kynbótahestur en fyrsta afkvæmi hans, Þormar frá Strandarhöfði varð í þriðja sæti á folaldasýningunni 2009. Þulur hefur fengið ýmis glettin gælunöfn í gegnum tíðina þ.a.m. Þulbert Nói og Þulmundur Hólm, en eitt folaldið í ár var einmitt skýrt Þulbert Nói til heiðurs föðurs sínum.

  Mynd: Þulbert Nói (jarpur) og Dökkvi Dimmusonur. 

 
< Fyrri   Næsti >
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007