Heim arrow Um okkur / Location
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Location Prenta Rafpóstur

Strandarhöfuð farm is about 70 minutes drive east from Reykjavik  (route 1)

strandarhfu_location

Guðmundur Már Stefánsson & Auður Margrét Möller.

audurgimmiGuðmundur er læknir að atvinnu en jafnframt mikill áhugamaður um reksturinn á Strandarhöfði. Hans aðaláhugamál í hrossunum eru ræktunarmálin og jafnframt er hann dyggur stuðningmaður dætranna þegar á keppnisvöllin kemur. Hann hefur mjög gaman að allri vélavinnu og kann að meta góðar vélar! Auk hestamennskunnar er Guðmundur ötull veiðimaður, bæði á stöng og í skotveiði.

Auður hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini. Hún sér um daglegan rekstur á Strandarhöfði. Auður er mikill áhugamaður um ræktun, bæði hrossa og kinda og finnst fátt skemmtilegra en að vera á kafi í sauðburði. Þó hún hafi mikinn áhuga á keppni hefur þátttaka hennar verið bundin við Kvennatölt, Svellkaldar konur á ís og vertaruppákomur Fáks.  Öllu líklegra er að finna hana í áhorfendabrekkunni að fylgjast með dætrunum eða í þulastúkunni.

 

 

Signý Ásta Guðmundsdóttir
signythulurSigný er elsta dóttirin á heimilinu og er í læknisfræði í HÍ.  Hún hefur brennandi áhuga á hestamennsku og þá ekki síst keppni. Síðastliðnu sumur hefur hún unnið við tamningar á Strandarhöfði.

Signý á tíkina Tessu sem er smalahundurinn í Strandarhöfði. Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 

 

Ásdís Björk Guðmundsdóttir
Ásdís og KalíberÁsdís útskrifaðist sem stúdent vorið 2007 úr Verslunarskóla Íslands.  Eftir að hafa dvalið við nám í Danmörku flutti hún heim og lærði hundasnyrtinu og starfar sem hundasnyrtir hjá Dekudýrum.
Ásdís hefur verið mjög virk í hestamennskunni í Strandarhöfði, bæði í keppni og við tamningar.
Ásdís á Golden Retriever tíkina Yrju sem er veiðihundurinn í Strandarhöfði. Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
 

 

 

Edda Rún Guðmundsdóttir

 eddasunna

Edda Rún er yngsta dóttirin á heimilinu og er nemandi við Menntaskólann við Sund. Hún hefur verið viðriðin hestamennskuna frá því hún var pínulítil og verið iðin við þjálfun, tamningar og keppni. Segja má að Edda eyði öllum sínum frítíma í hesthúsinu og oftar en ekki kemur það í hennar hlut að sjá um hin daglegu störf. Edda hefur verið að temja á Strandarhöfði en sumarið 2008 vann hún á Árbakka.   netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 


 

 

 

 
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007