|
Þegar við fluttum inn í Strandarhöfuð urðum við' fljótlega vör við horaðan og ræfilslegan kött að flækjast í kringum húsin. Þegar nánar var aðgætt og farið að gefa kisu mat, kom í ljós að hún var mannelsk og hlyti að eiga kettlinga einhversstaðar í felum þar sem hún var með fulla spena. Eftir langa leit fundum við kettlingana hennar uppi í rjáfri í skemmunni, þar sem kisan var búin að gera sér bæli í steinullarhrúgu.
Kisunni og kettlingum hennar var búið ból í hesthúsinu og eftir miklar vangaveltur fékk hún nafnið Hulda Proppé! Ástæðan fyrir þessu merkilega kisunafni var sú að dæturnar rifust svo mikið um hvað kisan ætti að heita að mamma, þreytt á riflildinu, reif upp símaskránna og opnaði hana, benti á nafn blindandi og sagði að hún ætti að heita því nafni sem fingurinn benti á...sem sagt Hulda Proppé.
Kettlingarnir voru 5 og, næstu 3 árin gaut hún Hulda 7 sinnum, total: 35 kettlingar ! Þá loksins komum við því í verk að taka hana úr sambandi. Þeir voru allir voða sætir og yndislegir og fengu allir góð heimili. Heppnust var þó hún Jelly Belly, fluttist í 101 Reykjavík, nánar tiltekið á Laufásveginn. Þar sefur hún á silkipúðum og fær rækjur í öll mál. Hún Jelly Belly hefur þó ekki alveg gleymt uppruna sínum sem veiðiköttur og hefur sést til hennar í Þingholtunum að reyna að veiða miðbæjarhrafnana.
|
|
|
Þótt Strandarhöfuð sé aðallega hrossaræktarbú erum við með annan búpening.
Kindurnar skipa stóran sess hjá okkur og erum við með um 70 ær á vetrarfóðrum.
Við leggjum mikla áherslu á litskrúðugt fé en jafnframt að það sé með góða gerð og skili kjötmiklum lömbum.
Auður er mikil áhugamanneskja um sauðkindina og afurðir hennar og þá sérstaklega um lambsullina, sem hún spinnur úr og framleiðir ullarband. Hefur hún sótt námskeið hjá Ullarselinu á Hvanneyri í ullariðn.
|
|
|