Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Folöld 2010 Prenta Rafpóstur
mánudagur 28. júní 2010

gnjaÞá eru öll átta folöld sumarsins fædd, þar af eru sex hestar en aðeins tvær merar litu dagsins ljós þetta sumarið, þær Freyja Framtíðar/Hugins dóttir og Gjóska, undan Súlu og Þrist frá Feti. Báðar fæddust svartar en eru byrjaðar að grána! Ekki slæmt það.

Fyrsta folald Sunnu frá Sumarliðabæ kom í byrjun júní, það reyndist vera brúnskjóttur hestur og hreint snýttur  úr nös móður sinnar! Edda Rún skírði hann Gormur enda vantar ekki fótaburðinn í hann frekar en móður hans. Paradís frá Brúarreykjum kastaði einnig sínu fyrsta folaldi, Pegasus frá Strandarhöfði en hann er undan glæsihestinum Gaumi frá Auðsholtshjáleigu.

Dimma frá Strandarhöfði kastaði fallegum Hróðssyni sem hlaut nafnið Dökkvi frá Strandarhöfði. Spennandi folald þar á ferð! Dimma hefur nú eignast 3 afkvæmi allt hestar en við bindum miklar vonir við að næsta verði merfolald en Dimma er með staðfest fyl undan Sveini-Hervari frá Auðsholtshjáleigu.

ulbertni Í ár fengum við þrjú folöld undan Þul frá Hólum, allt hestfolöld og lofa þeir allir góðu. Þórir frá Strandarhöfði kom fyrstur, hann er undan 1.verðlauna Kveiksdótturinni Gyðju frá Þorsteinsstöðum og er brúnn á lit. Þórir var nefndur eftir elsta tengdasyninum enda þykja þeir glettilega líkir í sjón. Þulur okkar hefur reynst okkur vel bæði á keppnisbrautinni og sem kynbótahestur en fyrsta afkvæmi hans, Þormar frá Strandarhöfði varð í þriðja sæti á folaldasýningunni 2009. Þulur hefur fengið ýmis glettin gælunöfn í gegnum tíðina þ.a.m. Þulbert Nói og Þulmundur Hólm, en eitt folaldið í ár var einmitt skýrt Þulbert Nói til heiðurs föðurs sínum.

  Mynd: Þulbert Nói (jarpur) og Dökkvi Dimmusonur. 

 
Þríhyrningur sigraður! Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 24. júní 2010
img_5303Vinnufólk frá Ármóti og Strandarhöfði örkuðu upp á Þríhyrning (678 m) í seinustu viku. Fjallið er nokkuð bratt og tók virkilega á þau Hafþór, Stellu, Teit, Eddu og Signýju á síðustu metrunum að toppnum. Útsýnið frá tindinum var þó erfiðisins virði!
Lesa meira...
 
Sumarið byrjar með látum! Prenta Rafpóstur
miðvikudagur 16. júní 2010

img_5210img_5219Þrátt fyrir hestapest og öskufjúk þá hefur verið nóg að gera hjá sumarstarfsmönnum Strandarhöfuðs. Teitur, Stella, Gabríel, Edda og Signý Ásta hafa haft í nógu að snúast að mála, girða og vinna í tryppunum. 

 Stefnt er á sigur á 17.júní leikunum í Njálsbúð á morgun. Team strandarhöfuð hefur æft grimmt fyrir 1,5 km hlaupið sem og reipitogið. Fyrirliði liðsins, Teitur Árnason segist nokkuð bjartsýnn á sigur sinna manna enda góður mórall í liðinu og ekki skemmi fyrir að vera með +50kg Rottweiler í liðinu. 

 
Always look at the bright side of life... Prenta Rafpóstur
þriðjudagur 1. júní 2010

skuveggur_31_maÞá er loksins búið að taka þá erfiðu ákvörðun að fresta landsmóti!  Hrikalega svekkjandi en ekki hægt að gera annað í stöðunni.  Vægast sagt undarleg staða fyrir alla!

Það er sama staðan hér í Strandarhöfði eins og á flestum hrossaræktarbúum að lítið er riðið út, hér eru það einhver þrjú hross sem eru heil, flest komin yfir veikina og þá fengið hana mjög væga.  Starfsmenn sumarsins eru að mæta til starfa og er starfskrafturinn notaður í að mála, smíða og gera fínt...Svo vonar maður bara að hrossin fari að detta inn í rólegheitunum.  Myndina hér við hliðina tók Auður í gær eftirmiðdag og sýnir öskuroksvegg sem liggur inn eftir Fljótshlíðinni en síðan sést sólbjartur jökullin hægra megin við.  Þetta er sami öskuveggur og lagðist yfir Rangárvellina, Ölfuss og vestur á Snæfellsnes.  Manni varð nú hugsað til þess að  það kæmi sér kannski bara vel að ekki er hægt að ríða út að neinu ráði, ekki huggulegt að þjálfa hross í svona ryki! 

Although the eruption seems to have "stopped" for the moment, the ash is being blown by the wind causing thick walls of ash being carried over farms and populated areas to every ones discomfort!  The photo above shows the ash wall on the left and the innocent looking glacier Eyjafjallajökull bathed in sunshine on the right.  skurrok_gunnars_boga

The second photo is taken inside the "ashstorm", shows, if you look carefully some horses in the mist.  Not the most favorable conditions to train horses! 

 

 

 mynd: Gunnar Bogi

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 9 - 12 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007