|
Þulur frá Hólum var sýndur af Guðmundi Björgvinssyni í forskoðun en Teitur okkar Árnason sýndi hann í yfirliti þar sem hann hækkaði sig heldur betur. Þulur fékk 9,0 fyrir skeið, 8,5 fyrir hægt tölt, fegurð í reið og vilja. Fyrir hafði Þulur 8,5 fyrir tölt en í þetta skiptið fékk hann 8,0. Fyrir hæfileika hlaut Þulur 8,27 en 7,93 í sköpulag, lækkaði þar um nokkrar kommur en hann lækkaði um 0,5 fyrir hófa.
Mynd:// Ragnhildur Haraldsdóttir
Sæssonurinn Kórall frá Lækjarbotnum stóð uppi sem efst dæmdi hesturinn í flokki 5.vetra graðhesta. Kórall, sem riðinn var af Jóhanni K. Ragnarsyni, hlaut 8,21 fyrir hæfileika, þar af 8,5 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag ásamt fegurð í reið. Kórall hafði fyrir 8,5 fyrir brokk en hlaut ekki nema 7,0 fyrir gangtegundina á þessari sýningu. Eftir sýningu fékk Kórall kærkomið frí og sinnir nú merum sínum upp í Landssveit.
Mynd:// Ragnhildur Haraldsdóttir
Aronsdóttirinn Djásn frá Lindarholti lækkaði talsvert í byggingu, fyrir hafði hún 8,24 en hlaut ekki nema 8,08 að þessu sinni. Talsvert var um að hross lækkuðu í byggingu á miðsumarsýningunni. Djásn fór samt sem áður í fín fyrstu verðlaun. Hæfileikar 8,12 þar af 8,5 fyrir skeið og vilja en enn á Djásn inni mikið, sérstaklega fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Djásn er undan Kolfinnsdótturinni Perlu frá Lindarholti sem er með 9,5 fyrir skeið. Djásn er til sölu og hægt er að hafa samband við Auði í síma 8943980 eða í skilaboðum hér á síðunni.
Mynd:// Strandarhöfuð
|