Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Góð sala! Prenta Rafpóstur
laugardagur 26. september 2009

rra_farin_til_skalandsMjög góð sala hefur verið í hrossum síðustu vikur og mánuði og mikið um fyrirspurnir.  Þó nokkur hross bíða útflutnings og týnist úr hópnum smá saman.

Þriggja vetra Glampadóttirin Áróra frá Strandarhöfði  er farin til nýrra eigenda í Þýskalandi.   

 
Folöldin braggast vel Prenta Rafpóstur
laugardagur 26. september 2009

dimma_passar_brninSiðustu dagana hafa haustlægðirnar gengið yfir eins og enginn sé morgundagurinn! Þau voru því hvíldinni fegin folöldin,þegar rofaði aðeins til.  Þau voru búin að standa og híma í rigningarbeljandanum.  Nú lágu þau sofandi í sólinni  og létu ekki einu sinni ljósmyndarann trufla hvíldina.

Sá skjótti, Dimmskjóni er undan Dimmu frá Strandarhöfði og Kletti frá Hvammi og er óðum að verða gráskjóttur.  Nafngift hans var nokkurskonar grín í upphafi en hefur loðað við hann...Það verður skondið þegar hann verður orðinn alhvítur!

 
Hrúta og gimbraskoðun Prenta Rafpóstur
laugardagur 26. september 2009


gimbrauklHeldur hefur heimasíðan legið niðri síðustu vikur, en við höfum verið ærið upptekin við haustverkin á búinu.  Það er búið að smala á flestum bæjum hér í kring, en eins og kannski flestir vita, þá eiga Landeyingar ekki afrétt og féð gengur í úthögum.  Réttarstemmning í Landeyjunum gengur því meira út á að skutlast milli bæja til að sækja kindurnar sínar og sötra kaffi saman.

Lesa meira...
 
Piet Hoyos hnakkur til sölu Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 10. september 2009

img_2695Erum með til sölu 2.ára vel meðfarinn Piet Hoyos hnakk m/stuttum móttökum.

Frekari upplýsingar fást í síma: 894-3980 (auður) eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 37 - 40 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007