Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Teitur og Þulur á verðlaunapall í Meistaradeild VÍS Prenta Rafpóstur
laugardagur 27. mars 2010

teitur__meistaradeild_5_gangEinn af stóðhestum Strandarhöfuðs, Þulur frá Hólum var að gera góða hluti með hinum unga knapa Teiti Árnasyni í fimmgangi Meistardeildar Vís á fimmtudaginn var.  Lentu þeir í þriðja sæti eftir æsispennandi keppni við marga af bestu fimmgangshestum landsins.  Teit þarf vart að kynna en Þulur frá Hólum er 9 vetra stóðhestu undan hinni þekktu Þrennu frá Hólum og Kormáki frá Flugumýri.

Mynd: Hestafréttir

Our 9 year old stallion Þulur frá Hólum was ridden by the young rider Teitur Árnason in the "Meistaradeild Vís" , which is a Masters league held every year, where many of Icelands best riders participate in.  Teitur and Þulur landed in 3rd place and shared the winner´s podium with Diddi Bárðar, who worked his way from the B-finals to take first place in A-finals,and Hinni Braga who landed in second place.

_idl0609 Stefnt er með Þul í dóm í vor en hann er með 8,05 fyrir hæfileika og 8,0 fyrir byggingu.  Við teljum að hann eigi mikið inni fyrir hæfileika. Þulur verður í girðingu í Strandarhöfði í sumar og er þeim sem hafa áhuga á að halda hryssum sínum undir þennan genabanka bent á að hafa samband við Auði, á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Mynd: eidfaxi.is

 
Jörðin vaknar... Prenta Rafpóstur
sunnudagur 21. mars 2010

img_3866Signý Ásta og Þórir voru stödd undir Eyjafjallajökli í gær vopnuð myndavél og sögðust í gríni ætla ná fyrstu myndunum af yfirvofandi eldgosi sem búið er að fjalla um í fréttunum seinustu vikur. Veðrið var rysjótt, eina mínuntuna rigndi en þá næstu rauk hitinn upp fyrir 10°C og sólin dundi á þeim ásamt því að allur vindur dó niður.  Þórir átti ekki orð yfir veðrinu og sagði þá við Signýju í djóki að þetta væri alveg týpískt eldgosaveður!  Þau gengu upp á Stóra-Dímon og  smelltu myndum af Eyjafjallajökli. 

Þegar þau fóru aftur niður vissi engin að fjallið fína sem prýddi myndir þeirra myndi byrja gjósa aðeins nokkrum klukkustundum seinna. Búið er opna aftur fyrir umferð inn í Landeyjarnar og verður fyllst grant með öskufalli og reynt að búa sem best um dýrin okkar. Engin var staddur í Strandarhöfði nóttina sem Landeyjarnar og nálægar sveitir voru rýmdar. Vonum það besta en undirbúum okkur undir það versta. mynd: Signý Ásta

 525588 Signý and her boyfriend Þórir went for a drive yesterday under the sleeping volcano Eyjafjallajökull and joked around that they where going snap the first pictures if the volcano would wake up. The weather that day was weird, one minute it was raining cats and dogs and then suddenly the sun would come out and wind die down.  The kids hiked up a little mountain just next to the volcano and took some photos of it.   They had no idea that only a few hours later this volcano would wake up from its  sleep and start havoc in the area with evacuation of hundreds of residents. Strandarhöfuð is no longer in the worst danger zone but we will of course have to be ready if volcanic ash starts falling and any changes occur in the volcanos behavior. We are on high alert and of course very scared about our animals but all we can do is hope for the best and be positive.  Picture: mbl.is

Lesa meira...
 
Efnilegur Sæssonur Prenta Rafpóstur
þriðjudagur 9. febrúar 2010

17266_292549518385_199597303385_3573537_2881114_nKórall frá Lækjarbotnum er efnilegur stóðhestur á 5 vetur sem hefur verið í tamningu og þjálfun hjá Jóa og Theo í Neðra Seli. Faðir Kórals er heiðursverðlauna stóðhesturinn Sær frá Bakkakoti og móðirin er Hraundís frá Lækjarbotnum, hann er því sammæðra gæðingnum Kaliber frá Lækjarbotnum. Það verður gaman að fylgjast með þessum fola í framtíðinni.

Eigendur Kórals ásamt Strandarhöfði.ehf  er Guðlaugur í Lækjarbotnum.

 
Enn einn smalahundurinn :) Prenta Rafpóstur
þriðjudagur 2. febrúar 2010

Alltaf bætistaskavið hundahjörðina í Strandarhöfði.  Nýjasti meðlimurinn er hún Steffstells Aska Prinsípesa, hreinræktaður íslenskur fjárhundur af eðal ætterni.  Aska er úr ræktun Stefaníu Sigurðardóttur sem er með Steffstells ræktun og er skírð í höfuðið á langömmu sinni Ösku sem Arna Rúnars og Helgi Leifur áttu. Hún er afar skemmtileg á litinn; Gulleirgrá, kolótt, sokkótt!

Nú eru fjórir hundar á bænum, Tessa hressa Border Collie, Ísidór Westý rakki, Yrja Golden retriever og Aska litla.  

The newest addition to the Strandarhöfuðs family is the 10 week old Icelandic sheepdog, Aska.  Aska has an excellent pedigree and wonderful coloring.  

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 25 - 28 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007