Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Nenni ekki að fjalla um gos! Prenta Rafpóstur
laugardagur 24. apríl 2010

hnsnakofinnJá það er eimmitt málið, nenni ekki að fjalla um þetta gos!  Maður er vakandi og sofandi yfir öskufalli  og hvort skuli hýsa hross eður ei og nú langar mig að tala um eitthvað skemmtilegra! 

Hænsnakofinn er loksins að verða tilbúinn svo að ég get farið að sækja púddurnar mínar til hans Bjarna vinar míns.  Hænurnar njóta mismikilla vinsælda hjá heimilisfólkinu en það er bara svo staðarlegt að hafa Landnámshænsn og stöndugan hana á bænum!

Sick of volcanic eruption, I choose to tell you about my new chicken hutch!  It has taken some time for the hutch to be ready but now I can go and pick up my chickens and a healthy rooster, can´t wait.  
Lesa meira...
 
Lambakóngurinn Órói! Prenta Rafpóstur
sunnudagur 18. apríl 2010

lambakngurÍ öllum látunum í kringum gosið í Eyjafjallajökli hefur hann Órói litli fengið litla athygli, en hann er fyrsta lamb vorsins og Lambakóngur.  Mamma hans er bara gemsi en mikil mamma og verður afar áhyggjufull ef hann er ekki öllum stundum beint fyrir augum hennar.

Annars er það að frétta að búið er að koma málum þannig fyrir að hægt er að hýsa öll hross sem eftir eru á jörðinni.  Vélaskemmur voru rýmdar og sett upp bráðabirgðagrindur svo hægt sé að hýsa fylfullu hryssurnar í neyð.  Hesthúsið tekur slatta svo við getum verið róleg.  Annars hefur vindáttin verið okkur hagstæð enn sem komið er.  

With the eruption in Eyjafjallajökull being the main issue these days the first lamb of the season or the "lamb King" has hardly been mentioned.  He has been named Órói which means Turmoil in English!  Órói is a frisky little ram, keeps his worried young mother on her "toes" running after him.

We have been busy making arrangements to be able to house all livestock and in order to do so we have cleared outhouses meant for machinery to house the pregnant mares if needed.  The winds have been favorable so far and we keep hoping for the best!

 
Volcanic eruption, take II Prenta Rafpóstur
föstudagur 16. apríl 2010

26839_385183465823_94957260823_4501079_7381707_nÞað virtust  aðeins líða nokkrar klukkustundir frá því að gosið á Fimmvörðuhálsi dó þar til toppur Eyjafjallajökuls byrjaði að spúa. Vindátt hefur verið hagstæð hingað til og engin aska fallið á okkar svæði. Búist er þó við að vindátt snúist og erum við í fullu að reyna undirbúa okkur og hrossin fyrir það versta. Ryðja þarf til í öllum útihúsum og breyta vélageymslum í hesthús á mettíma. Annars er sauðburður byrjaður og það er auðvelt að gleyma öllu um gos í návist nýborinna lamba.  Einnig eigum við von á fyrsta folaldinu einhvern næstu daga, en Gustsdóttirin okkar Súla frá Akureyri fór undir Þrist frá Feti á síðasta ári.  

mynd: visir.is. Tekin af Ólafi Eggertssyni, bónda á Þorvaldseyri.

Just when the eruption in Fimmvörðuháls seemed to be dying down a new and and much bigger one starts in Eyjafjallajökull. The wind direction has been favorable so far and no ash has fallen on our land and the floods sparked by the melting glacier has not been big enough to reach us. In anticipation of falling ash with changing winds we are preparing to house all livestock. With lambing season upon us, this is not a pleasant situation, but even with the eruption hanging over us the arrival of new life in the form of lambs and foals is always a joy and brings a warm smile to our faces.  We are expecting the first foal any day now, our white mare Súla frá Akureyri is due, sired by the beautyful pinto stallion Þristur frá Feti.

 
Fyrsti rekstur ársins Prenta Rafpóstur
miðvikudagur 31. mars 2010

img_4416Fyrsti rekstur ársins  var farinn í byrjun Dymbilviku.  Það var frábært að sjá hversu mikla ánægju hrossin höfðu af því að spretta úr spori í morgunsárið og ánægja rekstrarmanna var ekki minni.  Dís frá Litla-Moshvoli og Tvista frá Litla-Moshvoli sjást hérna á myndinni, búnar að taka forystuna! Gleðlega páska!

In the first days of Easter brake, we used the opportunity to let the stabled horses run free and herded them 5-6 km.  It is a joy to see them run free and in wild abandon, after weeks of concentrated work with their rider. Although it was chilly in the early morning, the sun was shining and both horses and humans  enjoyed the morning exercise.  Happy Easter!

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 21 - 24 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007