Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Til höfuðs músunum! Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 10. janúar 2008

LjóniMikið hefur borið á þeim hvimleiða gest, músinni, nú í haust.  Ástandið var orðið svo slæmt nú um jólin að fjölskyldan ákvað að nú væri komin tími til að ráða nýjan starfskraft í hesthúsið í Reykjavík, það er að segja músabana.  Leituðum við til Kattholts, en þar má finna fjöldan allan af gæðaköttum á ýmsum aldri.  Við völdum stóran og stæðilegan Persablandaðan fresskött sem hafði komið í Kattholt um miðjan nóvember og án þess að hans væri vitjað.  Við vildum miklu frekar gefa óskilaketti nýtt heimili heldur en að fá okkur einhvern krúttlegan kettling, enda þarf nokkuð þroskaðan kött til að takast á við svona músahjörð.  Fékk hann nafnið Ljóni og  er  nú búinn að koma sér vel fyrir á kaffistofunni í Víðidalnum.  Honum finnst hestarnir ennþá fremur ógnvekjandi en kann því vel hversu mikið er um öllu minni dýr, eða mýsnar.   Auðvitað flyst Ljóni síðan með okkur austur í Strandarhöfuð þegar starfsemin flyst þangað í vor og fær hann þá að kynnast frelsinu í sveitinni.

 
Ársól til nýrra heimkynna Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 3. janúar 2008

 


2 janúar komu þau heiðurshjónin Þór og Sigríður á Skriðu, Hörgárdal og sóttu Ársól frá Strandarhöfði og fluttu hana heim í Skriðu.

Ársól er undan Sjönu frá Höfðabakka og Kletti frá Hvammi og er því alsystir Einis frá Höfðabakka sem skoða má betur hér á síðunni undir "stóðhestar".   Ársól er fædd brúnskjótt en er nú þegar farin að lýsast og verður fljótt gráskjótt.  Við viljum óska þeim í Skriðu til hamingju með hana Ársól og vonum að hún verði þeim til happs og Strandarhöfði til sóma.

 
Gleðileg jól Prenta Rafpóstur
mánudagur 24. desember 2007
 
 
Gleðileg jól 
294575049
Óskum öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum frábærar viðtökur á heimasíðunni okkar.
 
-Fjölskyldan Strandarhöfði-
 
Hrósið fer til Björgunarsveitarinnar! Prenta Rafpóstur
mánudagur 17. desember 2007

óveðurshestarÞað hefur ekki farið framhjá neinum hér á suðvesturhorninu að hér hefur tekið nokkuð í vind.  Á föstudaginn 14 des varð Auður fyrir áfalli þegar hún kom upp í Viðidal að gefa morgungjöfina hjá Reykjavíkurhrossunum, en bárujárnið á þaki hesthússins var að flettast af með tilheyrandi hávaða.  Hringt var í Björgunarsveitina og skömmu síðar var vaskur hópur björgunarsveitarfólks mætt á staðinn, búin að farga þakið niður og negla fast...

 

 

Myndina tók Stefán á Fréttablaðinu og tengist ekki fréttinni beint. 

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 41 42 43 44 45 46 47 Næsta > Endir >>

Úrslit 181 - 184 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007