Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Paradís köstuð Prenta Rafpóstur
sunnudagur 9. maí 2010

 Paradís frá Brúarreykjum kastaði í gær eftirmiðdag, bleikálóttu hestfolaldi.paradsarsonur Paradís er með skemmtilegan genagrunn á bak við sig en Viðar frá Viðvík er afi hennar móður megin og Hrannar frá Kýrholti, föður megin. Paradís er feikna fótaburðarhryssa með 8,48 fyrir hæfileika.  Faðir folaldsins er Gaumur frá Auðsholtshjáleigu. Gaumur er með 8,69 í aðaleinkunn, þar af 9,05 fyrir hæfileika.

Það verður gaman að fylgjast með þeim stutta í framtíðinni paradsarsonur_1_dags_gamall

Our first price mare Paradís frá Brúarreykjum has given birth to a yellow dun/dorsal stripe stallion foal, sired by Gaumur frá Auðsholtshjáleigu.

 

 
Fyrsta folald sumarsins! Prenta Rafpóstur
föstudagur 7. maí 2010

freyja_framtardttirFyrsta folald sumarsins leit dagsins ljós nú um hádegisbil. Framtíð frá Árnagerði kastaði gráu merfolaldi undan Huginn frá Haga. Folaldið hefur fengið nafnið Freyja en okkur þótti við hæfi að gefa henni nafn út norænni goðafræði miðað við þau átök og þær náttúruhamfarir sem eiga sér stað þessa stundina.  Atburðirnir sem eiga sér stað á fjöllum í Eyjafjallajökli eiga sér vart neina líkingu nema úr goðafræðinni þar sem jötnar og Æsir takast á.

 The first foal of the summer has arrived, Framtíð frá Árnagerði gave birth to a grey marefoal sired by Huginn frá Haga.  She has been given the name Freyja, a name from nordic mythology, Freyja being the godess of love and fertility.  In the background of this photo of Framtíð and Freyja the eruption in Eyjafjallajökull can be seen. Quite some stage for a birth!

Lesa meira...
 
Vorverkin í algleymingi Prenta Rafpóstur
sunnudagur 2. maí 2010

2_maEnn heldur gosið áfram í Eyjafjallajökli og svona leit hann sakleysislega út að morgni 2.maí.  Deginum áður hafði hann ausið úr sér svartri gjósku og hrellt vini okkar fyrir austan.   Þegar skýjabakki liggur yfir jöklinum, er auðvelt að gleyma því að gosið sé í gangi og ganga þá til vorverka sæll og glaður án allra áhyggja um öskufall og flúoreitrun.

Hestakvefið hefur síðan verið að hrella okkur í hesthúsinu í Víðidalnum en er vonandi að ganga yfir.  Kynbótasýningar handan við hornið og úrtaka í lok mánaðarins. Hérna fyrir austan í Strandarhöfði er beðið í ofvæni eftir fyrstu folöldunum, sauðburður er rúmlega hálfnaður og búið að plægja fyrir nýrækt og smá korni. 

The eruption in Eyjafjallajökull is still going strong, and this is how it looked  on the morning of 2 may at sunrise.  A few days ago it was covered in clouds which made it almost possible to forget the existence of an erupting volcano only 25 km away. Life goes on and currently we are more than half way through lambing season with sleepless nights and the joy of many cute and curly lambs. Some of the mares are due any day now which is always the most exciting event of the spring. We are expecting foals sired by Hróður frá Refstöðum, Huginn frá Haga, Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, Þristur frá Feti and Þulur frá Hólum. 

 
Það er gaman að vera til! Prenta Rafpóstur
sunnudagur 25. apríl 2010

25600_384600887615_725872615_4003035_7788528_nÞað þarf ekki að spyrja hvort þessar tvær skvísur skemmta sér ekki vel í sveitinni! Yrja, hvíta golden retriver tíkin hennar Ásdísar og litli íslendingurinn hún Aska ákváðu að fá sér sundsprett í skurðinum í dag. Ásdís sem er hundasnyrtir var ekki á svæðinu en verður henni veitt áfallahjálp þegar hún fær hundinn sinn tilbaka.

The two pups, Yrja and Aska, thought it would be an excellent idea to take a bath in the nearby ditch today. Yrja´s owner, Ásdís, is a licensed dog groomer and was definitely NOT as happy with the situation as the two pups were!

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 17 - 20 af 188
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007