|
fimmtudagur 27. maí 2010 |
|
Kveiksdóttirin Gyðja frá Þorsteinsstöðum kastaði í morgun, brúnu hestfolaldi. Faðirinn er stóðhesturinn okkar Þulur frá Hólum. Þulur er undan Þrennu frá Hólum og Kormáki frá Flugumýri. Stór dagur hjá Þul í dag; nýtt afkvæmi fætt og hann á leið í dóm í Hafnarfirði. Þulur hefur farið létt út út pestinni og ekki sýnt nein einkenni í um tvær vikur. Vekur hjá manni vonir um að þetta ástand sé að byrja að ganga yfir. Stefnt er með Gyðju undir Aron frá Strandarhöfði þetta árið!
New kid in town! Our first prize mare Gyðja frá Þorsteinsstöðum (daughter og Kveikur frá Miðsitju) gave birth to a black stallion foal, sired by our stallion Þulur frá Hólum. Þulur is being judged today so we are very exited.
|
|
sunnudagur 23. maí 2010 |
|
Svona leit hann út, jökullinn þann 23 maí; óskaplega sakleysislegur og einna helst að hann líkist Hellisheiðarvirkjun, fremur en þeirri ófreskju sem hann er búinn að vera síðustu vikur!
Vísindamennirnir segja að gosinu sé lokið...kannski í bili, hver veit? En við vonum náttúrulega öll að ósköpunum sé í raun lokið og að hægt sé að ganga inn í sumarið, bera á tún og takast á við hversdagsleg vandamál sem ekki tengjast ösku og flóðum!
Aðrar gleðifréttir dagsins eru að Sunna frá Sumarliðabæ er köstuð, brúnskjótt hestfolald undan Auð frá Lundum II. Þetta er fyrsta folald Sunnu, en hún er 14 vetra gömul og búin að vera upptekin í að vera keppnishross Eddu Rúnar síðustu ár! Folaldið hefur ekki enn fengið nafn en hann er lofthár með næstum jafnlangar lappir og mamma sín og fer á öllum gangi.
This is the sight we had of the volcano today, 23 may! The eruption has stopped and what we see is steam rising from the cooling crater! The scientists say its over and we sincerely hope they are right.
More good news! Our fantastic mare, Sunna frá Sumarliðabæ II has given birth to a black pinto stallion foal. This is Sunna´s first offspring as she has been busy in competition with her rider Edda Rún. The foal is a long legged beauty that shows all five gates and glides around on legs almost as long as his mothers!
|
|
föstudagur 14. maí 2010 |
|
Það hlaut að koma að því! Einum og ótrúlegt að við myndum sleppa við öskufall svona í næsta nágrenni Eyjafjallajökuls! Að morgni föstudagsins 14 maí vöknuðum við við þessa sjón! Kolbikasvartur öskustrókurinn stóð beint yfir okkur ásamt rigningu sem gerði það að verkum að rigningin var svört! Það var rokið til og hrossum smalað inn og sett ferskt hey hjá þeim skepnum sem þurftu að vera áfram úti. Þegar öskufallinu slotaði rétt fyrir hádegi hófst hreinsun á nánasta umhverfi íbúðarhússins en þar var tæplega sentimeters öskulag sem barst viðstöðulaust inn með gangandi vegarendum. Dagurinn fór í hreinsun og nutum við hjálpar góðra vina og fjölskyldu! Erla og Siggi komu galvösk frá Gilsbakka, vopnuð slöngum og jákvæðu hugarfari og Jóhanna vinkona okkar gerði sér sérstaka ferð austur til að hjálpa til. Teitur, Tóti, Signý Ásta voru eins jarðýtur í hreinsuninni! Kíkið á fleiri myndir hér
Ljósmynd: Signý Ásta
It was too good to be true, that we hadn´t had any falling ash yet, despite the volcano being so near! On the morning of may the 14th this is the sight we woke up too! We rushed to bring the horses to safety! When the ash stopped falling around noon, we started the cleaning operation that took the whole day, with the help of good friends and family . Check out the more photos.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
þriðjudagur 11. maí 2010 |
|
Gustsdóttirin okkar Súla frá Akureyri kastaði síðastliðna nótt, brúnu merfolaldi undan Þristi frá Feti.Við höfðum vonast eftir skjóttu og urðum fyrir smá vonbrigðum þegar birtist bara brúnt folald! Hugguðum okkur þó við að það væri hryssa. En í morgunbirtunni kom í ljós að hún er með hvít hár á augnlokunum svo hún verður grá eins og allar systur hennar! Hér á myndinni til hliðar má sjá gráu hárin á augnlokunum. Þessi mynd er tekin núna í morgunsárið þegar hún er þornuð en varla búin að rétta fyllilega úr sér.Hún hefur hlotið nafnið Gjóska!
One of our most favorite mares, Súla frá Akureyri gave birth to a black mare foal last night. The father is the black pinto Þristur frá Feti and we were hoping for a pinto foal. What at first looked like just a plain black foal, is a potential gray foal, as can be seen on its eyelids! She has been given the name Gjóska which means tephra (solid matter that is ejected into the air by an erupting volcano) in recognition of our erupting Eyjafjallajökull!
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 13 - 16 af 188 |