|
þriðjudagur 24. ágúst 2010 |
|
Næstu vikur verða söluhross í þjálfun í Viðidalnum á félagssvæði Fáks. Fullt af góðum hrossum í boði. Má þar nefna Djásn frá Lindarholti, 1 v. hryssa, flugvökur og þjál. Þóra frá Litla-Moshvoli Kolfinnsdóttir, Brana frá Vatnsleysu, Glampadóttir. Sjón er sögu ríkari, kíkið á "hestar til sölu" og hafið samband ef þið viljið koma og skoða.
We are moving the saleshorses to our stable in Reykjavik, where they will be trained and shown to those interested. Amongst them are i.e. Djásn frá Lindarholti 1 prize mare, very good five gaiter, excellent pace. Check out our "horses for sale" and contact us if you want to come and take a look.
Mynd: // Hekla frá Strandarhöfði og Teitur
|
|
sunnudagur 22. ágúst 2010 |
|
Vorum að setja inn nýtt myndband af Þóru frá Litla-Moshvoli. Þóra er flink alhliðahryssa með feikna ættir á bak við sig. Þóra er til sölu - myndbandið er hægt að sjá HÉR.
We have just released a new video of Þóra frá Litla-Moshvoli. Þóra is a talented 5-gaiter with excellent pedigree. Þóra is for sale - the video can be seen HERE.
|
|
mánudagur 16. ágúst 2010 |
|
Teitur og Þulur frá Hólum gerðu það gott á Íslandsmóti yngri flokka um síðustu helgi á Hvammstanga, einungis viku eftir þeir urðu Reykjavíkurmeistarar í fimmgangi ungmenna.
Teitur var efstur eftir forkeppni í fimmgangi ungmenna með einkunina 6,67 og hélt þeirri forystu í A-útslitum og varð Íslandsmeistari í fimmgangi ungmenna. Þulur er nú komin heim í Strandarhöfðuð og farinn að hitta hryssurnar sínar á ný eftir smá pásu.
Teitur lét ekki þar við sitja heldur hampaði Íslandsmeistara titli í Slaktaumatölti ungmenna á Öðlingi frá Langholti. Einnig varð Teitur samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum ungmenna. Við óskum honum Teiti okkar til hamingju með árangurinn!
Our trainer Teitur Árnason is the Icelandic championship´s young rider F1 winner on our 1st prize stallion Þulur frá Hólum, after the Icelandic championships, younger riders, last weekend at Hvammstangi. Teitur and Þulur came 2nd in "gæðingaskeið" Stilpass, and were the five gait combination winners. Þulur is now back with his mares, happy and content!
|
|
|
miðvikudagur 4. ágúst 2010 |
|

Systurnar Djásn og Sif frá Lindarholti, Aldís frá Fróni og Sunna frá Læk voru að bætast á sölulista hjá okkur. Allar eru þetta stólpa hryssur með mikinn fótaburð og fas.
Alltaf gaman að vera með góða hesta til sölu!
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 188 |