Heim
Strandarhöfuð hrossaræktarbú
Hafa samband
Ný hross á söluskrá Prenta Rafpóstur
laugardagur 24. júlí 2010

 sindriVið erum byrjuð að bæta inn nýjum hrossum á söluskrá. Þeir Þáttur, Magni og Sindri frá Litla-Moshvoli eru allt efnilegir geldingar úr ræktum Hreggviðs Þorsteinssonar frá Litla-Moshvoli. Fleiri söluhestar bætast inn í næstu viku, þar má nefna 1.verðlauna Aronsdætur, ungir geldingar undan Þrist frá Feti og tvö ný keppnishross.Verið því dugleg að fylgjast með síðunni, spennandi tímar framundan.

We have started adding new horses to our horses for sale category. Next week we will be adding 1.prize daughters of Aron frá Strandarhöfði, very exciting geldings (father Þristur frá Feti) and more. Please keep posted! 

 
Brana vekur athygli Prenta Rafpóstur
laugardagur 24. júlí 2010

branaBrana frá Vatnsleysu er 6 vetra hryssa undan Glampa frá Vatnsleysu og Brúnkollu frá Vatnsleysu. Stella Sólveig var með Brönu í þjálfun í vetur og eftir veikindapásu virðist Brana vera komast í toppform aftur. Farið var í fyrsta alvöru rekstur ársins í gær og planið er að fara í hestaferð eftir verslunarmannahelgina. Nóg er um að vera í næstu viku hér á Strandarhöfði en stefnt er með myndanlegan hóp hrossa í dóm á Gaddastaðaflötum, þar má meðal annars nefna Þul frá Hólum og Sæsdótturina Tvistu frá Litla-Moshvoli.

Things are looking up at Strandarhöfuð farm! Brana from Vatnsleysa is finally better after being sick from the horse-flu. Brana was trained by Stella Sólveig this winter and we are very happy with the results. Brana has a very intersting colour, chestnut with blaze, white socks and white mark in eye. Breeding shows are just around the corner and we are very hopeful that our horses will do well.

 
Kolar í Danmörku Prenta Rafpóstur
mánudagur 28. júní 2010

kolar3Það er alltaf  gaman að fá fréttir af þeim hestum sem seldir hafa verið úr landi. Kolar frá Strandarhöfði er 3.vetra stóðhestur undan Sæ frá Bakkakoti og Gyðju frá Þorsteinsstöðum. Kolar var seldur til Danmerkur á síðasta ári og fór í byggingardóm nú í vor. Þar hlaut hann 7,94 en þar sem hann er einungis 3.vetra á hann eftir að þroskast og fyllast betur út. Kolar sinnir nú í hryssum og stefnt er með hann í fullnaðardóm næsta vor og verður hann þjálfaður af Rasmus Möller Jensen.

Mynd: Kolar frá Strandarhöfði

It´s is always a joy to get news about horses from Strandarhöfuð farm that have been sold abroad. Kolar frá Strandarhöfði is a 3.year old stallion who was sold to Denmark last year. Kolar´s father is Sær frá Bakkakoti (honor prize) and his mother is Gyðja frá Þorsteinsstöðum (1.prize). Kolar was jugded this spring an received 7,94 for conformation, at only three his still is maturing and growing. Kolar is now servicing mares and will be trained by Rasmus Möller Jensen this season.

 
Folöld 2010 Prenta Rafpóstur
mánudagur 28. júní 2010

gnjaÞá eru öll átta folöld sumarsins fædd, þar af eru sex hestar en aðeins tvær merar litu dagsins ljós þetta sumarið, þær Freyja Framtíðar/Hugins dóttir og Gjóska, undan Súlu og Þrist frá Feti. Báðar fæddust svartar en eru byrjaðar að grána! Ekki slæmt það.

Fyrsta folald Sunnu frá Sumarliðabæ kom í byrjun júní, það reyndist vera brúnskjóttur hestur og hreint snýttur  úr nös móður sinnar! Edda Rún skírði hann Gormur enda vantar ekki fótaburðinn í hann frekar en móður hans. Paradís frá Brúarreykjum kastaði einnig sínu fyrsta folaldi, Pegasus frá Strandarhöfði en hann er undan glæsihestinum Gaumi frá Auðsholtshjáleigu.

Dimma frá Strandarhöfði kastaði fallegum Hróðssyni sem hlaut nafnið Dökkvi frá Strandarhöfði. Spennandi folald þar á ferð! Dimma hefur nú eignast 3 afkvæmi allt hestar en við bindum miklar vonir við að næsta verði merfolald en Dimma er með staðfest fyl undan Sveini-Hervari frá Auðsholtshjáleigu.

ulbertni Í ár fengum við þrjú folöld undan Þul frá Hólum, allt hestfolöld og lofa þeir allir góðu. Þórir frá Strandarhöfði kom fyrstur, hann er undan 1.verðlauna Kveiksdótturinni Gyðju frá Þorsteinsstöðum og er brúnn á lit. Þórir var nefndur eftir elsta tengdasyninum enda þykja þeir glettilega líkir í sjón. Þulur okkar hefur reynst okkur vel bæði á keppnisbrautinni og sem kynbótahestur en fyrsta afkvæmi hans, Þormar frá Strandarhöfði varð í þriðja sæti á folaldasýningunni 2009. Þulur hefur fengið ýmis glettin gælunöfn í gegnum tíðina þ.a.m. Þulbert Nói og Þulmundur Hólm, en eitt folaldið í ár var einmitt skýrt Þulbert Nói til heiðurs föðurs sínum.

  Mynd: Þulbert Nói (jarpur) og Dökkvi Dimmusonur. 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 4 af 183
   
 
©Strandarhöfuð ehf. | 861 Hvolsvöllur | Sími 487 5009 | GSM 894 3980 | Allur réttur áskilinn IceSoft ©2007